Lýsing
Tíð þvaglát & kraftlítil buna
Helsta einkenni góðkynja stækkunar á blöðruhálskirtli er truflun á þvaglátum. Þessum einkennum má gróflega skipta í tvennt, annarsvegar vegna teppu sem stækkuninn veldur og hinsvegar vegna ertingar sem verður á blöðruna.
- Tíð þvaglát.
- Kraftlítil þvagbuna.
- Bunubið – stendur á því að koma bununni af stað.
- Þvagleki.
- Slitrótt þvaglát, erfitt að tæma og tilfinning um að blaðran sé ekki tóm.
- Þvagteppa.
Ef ertingur er á blöðruna af völdum blöðruhálskirtils geta eftir farandi einkenni gert vart við sig:
- Þvagleki.
- Tíð þvaglát bæði á daginn og á nóttinni.
- Skyndileg þvaglátaþörf.
- Sviði eða sársauki við þvaglát.
Nánar um innihaldsefnin
Hörfræjaþykkni
250 mg dagsskammtur af hörfræjaþykkni sem samsvarar 2250 mg af hörfræjum. Spornar við myndun di-hydro-testóseróns sem er megin ástæða stækkunar á blöðruhálskirtli.
Graskersfræjaþykkni
Graskersfræjaþykknið samsvarar 1500 mg. Hefur verið notað við stækkuðum blöðruhálskirtli. Nýlegar rannsóknir sýna fram á sambærilega virkni og hörfræjaþykknið.
Granateplaþykkni
1200 mg granatepli. Granatepli eru rík af andoxunarefnum sem vinna gegn skaðlegum sindurefnum sem umbreyta heilbrigðum frumum í skaðlegar. Mjög mikilvægt til að viðhalda heilbrigði blöðruhálskirtilsins.
Sink, Selen, D- og E- vítamín
5 mg Sink sem viðheldur eðlilegu testósterónmagni í blóðinu. 30 µg selen, 10 µg D- og 10 µg E-vítamín sem eru mikilvæg andoxunarefni sem m.a. styrkja sinkupptöku og –nýtingu líkamans.
Dagsskammtur 2 töflur á dag með glasi af vatni
Mín áskrift mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótaefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma og tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma á borð við flogaveiki, ofvirkan skjaldkirtil og sykursýki.
Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótaefni eiga ekki að koma í staðinn fyrir fjölbreytt og hollt mataræði.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.