Lýsing
Good Night gegn svefnleysi og svefnvandamálum
Góður svefn er undirstaða góðrar heilsu en um það bil þriðjungi
mannsævinnar er varið í svefn. Tímabundið svefnleysi getur valdið
vanlíðan og þreytu á daginn og haft mikil áhrif á dagleg störf. Við
eigum erfiðara með að einbeita okkur, erum þreytt og pirruð og
rökhugsun skerðist. Algengt að streita, áhyggjur, kvíði, óvissa og
þunglyndi valdi því að við sofum illa en ýmsir sjúkdómar, bæði
líkamlegir sem og andlegir geta haft bein áhrif líka. Margir kannast
líka við mikla þreytu í tengslum við ferðalög milli tímabelta og/eða
vaktavinnu og svo hefur mataræðið einnig áhrif.
Good Night er einstök vara sem inniheldur amínósýruna L-tryptófan og
blöndu af jurtum sem allar eru þekktar fyrir að vera streitulosandi og
geta auðveldað fólki að sofna. L-tryptófan virkar róandi á
miðtaugakerfið okkar og ef Good Night er tekið nokkru fyrir svefn,
getur það auðveldað fólki að sofa betur.
Svefnhormónið melatónín
L-tryptófan er amínósýra sem við fáum úr ýmsum matvælum, t.d. úr
eggjum, osti, laxi, hnetum, fræjum, kalkúnakjöti og tofu. Þessi
amínósýra er lífsnauðsynleg því líkaminn okkar framleiðir hana ekki
sjálfur. L-tryptófan er m.a. byggingarefni svefnhormónsins melatóníns
sem heilaköngullinn framleiðir og getur það því haft áhrif á svefn.
Róandi jurtir
Auk L-tryptófans inniheldur Good Night vel þekktar jurtir: Melissu sem
getur hjálpað okkur að sofna ásamt lindarblómi og höfrum sem eru
sérstaklega róandi. Það inniheldur einnig blöndu af B-vítamínum og
magnesíum. B vítamín eru sérlega mikilvæg fyrir starfsemi
taugakerfisins og magnesíum sem er vöðvaslakandi og getur m.a. dregið
úr fótapirringi.
Inntaka
2 töflur með vatni klukkutíma fyrir svefn. Eins og með margar jurtir
er ráðlagt að taka Good Night í nokkrar vikur samfellt til að ná
fullri virkni. Sumir finna fljótt mun en aðrir þurfa lengri tíma.
Mín áskrift mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars
fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótaefnum.
Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn
á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma og tekur lyf að staðaldri
eða hefur undirliggjandi sjúkdóma á borð við flogaveiki, ofvirkan
skjaldkirtil og sykursýki.
Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir
þá og fæðubótaefni eiga ekki að koma í staðinn fyrir fjölbreytt og
hollt mataræði.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.